15. ágúst 2011Leikskólafréttir / starfsmannabreytingar
Hér í leikskólanum er allt að komast í eðlilegt horf eftir sumarfrí. Allir sólbrúnir og sætir eftir góða daga í sólinni. Aðlögun hefur gengið vel og bjóðum við nýja sem eldri nemendur velkomna. Eins og svo oft á haustin þá verða starfsmannabreytingar, ungu konurnar okkar að fara í skóla eða í barneignarleyfi. Hafdís Ósk hættir 17. ágúst, Þórhildur hættir 23. ágúst og Íris Ósk verður eitthvað fram í september. Þær eru allar að fara í áframhaldandi nám og þökkum við þeim fyrir gott og skemmtilegt samstarf og óskum þeim velfarnaðar í framtíðinni. Anna Valdís sem var á Þúfu er farin í barneignarfrí, Larý er að koma tilbaka úr barneignarfríi og verður í afleysingum, Saga Hilma byrjar að vinna hjá okkur 16. ágúst og verður hún á Hvammi og 5. september byrjar Ásdís þroskaþjálfanemi og verður hún stuðningur.