Þema leikskólans

Þema leikskólans fyrir leikskólaárið 2008 - 2009 er:

  • 2ja ára börn: Ég sjálf/ur, lífsleikni
  • 3ja ára börn: Ég sjálf/ur, lífsleikni
  • 4ra ára börn: Ég sjálf/ur, fjölskyldan, lífsleikni
  • 5 ára börn: Undirbúningur fyrir grunnskólanám og bærinn minn Reykjanesbær.

Einnig verður unnið með markvissa málörvun í öllum aldurshópum. Þar sem markmiðið er að barnið fái tækifæri til að tjá hugsanir sínar,
tilfinningar og skoðanir. Að efla málskilning, málnotkun, orðaforða og hugtakaskilning barna og efla markvisst hljóðkerfisvitund barnanna
og búa þau þannig undir lestrarnám. Ásamt því að efla markvissa hreyfingu og allt annað sem fylgir í skipulagi og starfsemi skólans daglega.

Lífsleikni spilar mikinn þátt í öllu daglegu lífi. Þar sem hæfni til samskipta er grundvöllur þess að lifa, starfa og leika sér með öðrum í sátt og
samlyndi, þarf barnið að læra að vera virkur og ábyrgur þátttakandi í lýðræðisþjóðfélagi. Komum við til með að halda áfram með að styðjast við þróunarverkefnið sem leikskólarnir Krógaból, Síðusel og Sunnuból á Akureyri unnu og heitir Lífsleikni í leikskóla. Verkefnið hófst í ágúst 2001 og því
lauk 2004. Dr. Kristján Kristjánsson, prófessor við Háskólann á Akureyri var faglegur ráðgjafi við verkefnið og Sigríður Sita Pétursdóttir ráðgjafi við skólaþróunarsvið Háskólans á Akureyri var ráðin verkefnastjóri. Þróunarverkefnið er þannig uppbyggt að unnið er með dyggðirnar sem eru vingjarnleiki, virðing, hófsemi, glaðværð, hugrekki, hjálpsemi, þolinmæði, sköpunargleði, kurteisi, áreiðanleiki, samkennd og ábyrgð. Dyggðin er útskýrð fyrir leikskólakennaranum og svo koma umræðupunktar fyrir börnin í lokin á hverjum kafla fyrir sig.

Hafa samband

420 3160 gardasel@reykjanesbaer.is

Matseðill vikunnar

14. - 18. maí 2012

Mánudagur
Soðinn fiskur, kartöflur og grænmeti
Þriðjudagur
Bixímatur, kartöflur og agúrka
Miðvikudagur
Plokkfiskur, kartöflur og salat
Fimmtudagur
Uppstigningardagur - frí
Föstudagur
   Kjúklingapottréttur, grjón og salat

Nýjustu myndir

Jóla, jóla 2010

Skoða myndasafn

Jólaball foreldrafélagsins 2010

Skoða myndasafn