Lestrarmenning

Lestrarmenning í Reykjanesbæ er þriggja ára þróunarverkefni sem hrundið var að stokkunum til að efla lestrarfærni barna í sveitarfélaginu 2003-2006. Um er að ræða samfélagslegt verkefni sem miðar sérstaklega að samstarfi leik- og grunnskóla, bókasafns, fjölskyldu og félagsþjónustu, heilslugæslu og menningar- og tómstundastarfs bæjarins auk þáttöku almenning og ýmissa annarra stofnanna og samtaka hér í bæ.

Leikskólinn Garðasel hefur sett sér eftirfarandi markmið:

  • Að efla málskilning, málnotkun, orðaforða og örva skýran framburð nemenda.
  • Að efla markvisst hljóðkerfisvitund þeirra og undibúa þau þannig undir lestrarnám.
  • Að hvetja þau til að segja frá atburðum og öðru sem þau hafa áhuga á.
  • Að vekja áhuga þeirra á sögum ljóðum og þulum.
  • Að örva ímyndunarafl og forvitni þeirra með lestri bóka.
  • Að kennarar hugi að markvissri málrækt sem fer fram í hinum ýmsu stundum dagsins svo sem vinnustundum, hreyfingu, fataklefum, samverustundum og matmálstímum.
  • Að allir kennarar sameinist um að hafa fyrir börnunum rétt og fallegt íslenskt mál.

Börn sem lesið er fyrir daglega eru líklegri til að verða vel læs, Með lestrinum eykst almennur orðaforði, hugtakaskilningur, einbeiting, athygli og almennur lesskilningur sem er undirstaða frekara náms.

Við á Garðaseli höfum tekið fullan þátt í Lestararmenningar-átaki Reykjanesbæjar og höfum unnið mikið með markvissa málörvun og lestur í okkar daglegu starfi s.s. í vinnustundum, markvissri hreyfingu, heimspeki, frjálsa leiknum og samverustundum en þar er m.a. góður vettvangur málræktar þar sem nemendur hlusta á sögur, syngja, læra þulur og vísur.

Lögð er fram kennsluáætlun annan hvern mánuð, en hún samanstendur af söngvum, vísum/þulum og hugmyndum af bókum til lestrar fyrir nemendur. Á starfsmannafundum vinna hópstjórar saman í árgangaskiptum hópum og leggja inn efni sem vinna á markvisst með í vinnustundum þann mánuðinn. Hlutverk kennarans er að fylgja eftir áætlun um lestarmenningu og sníða hana að aldri og þroska þeirra barna sem þeir eru með í hóp.Í vetur verður haldið áfram að vinna markvisst með málörvun í öllum aldurshópum 2-6 ára.

  • Elsti árgangurinn fer tvisvar í viku í markvissa málörvun þar sem unnið er með hljóðkerfisvitund, rím, samstöfur, samsett orð, hljóðgreiningu, margræð orð og hljóðtengingu. Unnið verður með námsefnið Markviss málörvun, Ljáðu mér eyra, Ótrúleg eru ævintýri, Svona gerum við og hljóðkerfisvitundarspili ásamt öðrum skemmtilegum verkefnum. Farið verður með elstu nemendur markvisst í bókasafn Reykjanesbæjar.
  • Í næst elsta árgangi verður unnið einu sinni til tvisvar í viku með markvissa málörvun sem felur í sér m.a. málskilning, tjáningu og hugtakaskilning. Einnig verður unnið með hljóðkerfisvitund, rím, samstöfur og samsett orð. Lestur bóka verður í hávegum höfð og munu börnin læra í vetur skemmtilegar þulur/vísur.
  • Í næst yngsta og yngsta árgangi verður aðalherslan lögð á daglegar venjur og málþroskann, unnið verður með stuttar sögur, leiki og þulur. Þema þessa árgangs verður "líkaminn" og "ég sjálfur".

 

Hafa samband

420 3160 gardasel@reykjanesbaer.is

Matseðill vikunnar

14. - 18. maí 2012

Mánudagur
Soðinn fiskur, kartöflur og grænmeti
Þriðjudagur
Bixímatur, kartöflur og agúrka
Miðvikudagur
Plokkfiskur, kartöflur og salat
Fimmtudagur
Uppstigningardagur - frí
Föstudagur
   Kjúklingapottréttur, grjón og salat

Nýjustu myndir

Jóla, jóla 2010

Skoða myndasafn

Jólaball foreldrafélagsins 2010

Skoða myndasafn