Foreldrasamstarf

Gildi og markmið foreldrasamstarfs

Eitt af meginmarkmiðum í uppeldisstarfi leikskóla er samkvæmt lögum
að kappkosta í samvinnu við heimilin að efla alhliða þroska barna í samræmi við eðli
og þarfir hvers og eins. Til að leikskólinn geti unnið að þessu markmiði er nauðsynlegt
að hann hafi náið samstarf við foreldra eða forráðamenn barnsins. Samstarf og samvinna
við foreldra er mikilvægur þáttur í uppeldisstarfi leikskóla. Gagnkvæm kynni og traust
samband þarf því að skapa milli foreldra og leikskólakennara barnsins.

Markmið leikskólans með foreldrasamstarfi er:
-- að rækta samvinnu og samskipti leikskólans og heimilanna
-- að veita foreldrum upplýsingar um starfsemi leikskólans
-- að veita foreldrum upplýsingar um þroska barnsins og stöðu þess í leikskólanum
-- að afla upplýsinga um aðstæður og uppeldisviðhorf foreldra og kynnast lífi og stöðu
    barnsins innan vébanda heimilisins
-- að stuðla að þátttöku foreldra í starfi leikskólans
-- að skapa umræðuvettvang fyrir skoðanaskipti á uppeldi barna
                                     (Aðalnámskrá leikskóla)

Eitt af meginforsendum fyrir góðu foreldrasamstarfi eru foreldrasamtölin. Þó svo að
dagleg samskipti milli foreldra og leikskólakennara séu góð, þá eiga þau samskipti sér
oftast stað við aðstæður þar sem aðrir t.d. foreldrar, kennarar og börn eru í heyrnarfæri.
Til þess að foreldrasamtölin komi barninu að gagni er mikilvægt að foreldrar og kennarar ræði
saman og fræðist hvort af öðru. Eftir foreldrasamtal ættu tvö eða fleiri sjónarhorn að koma fram
um barnið sem síðan eru sett saman og mynda nokkurs konar heildarsýn á barnið.

Í grunninn eru markmið foreldrasamtala þau að fá góða heildarmynd af lífi og starfi barnsins

-- að foreldrar og leikskólakennarar kynnist barninu betur
-- að foreldrar og leikskólakennarar kynnist hvort öðru
-- að ræða og draga fram í dagsljósið mismunandi skoðanir
-- að ræða hvernig er best að mæta þörfum barnsins
-- að skapa traustan og gagnkvæman skilning

Hér koma fimm atriði sem vert er að hafa í huga í foreldrasamtali

-- Sýn foreldra á barnið
-- Sýn foreldra á starf leikskólans, með þarfið barnsins og foreldranna
    að leiðarljósi
-- Sýn leikskólakennarans á barnið
-- Sýn leikskólakennarans á starfið með tilliti til þarfa barnsins
-- Gagnkvæmur skilningur milli foreldra og leikskólakennara
                        (Tomas Rahm og Gunnlög Wall 1993)

Hafa samband

420 3160 gardasel@reykjanesbaer.is

Matseðill vikunnar

14. - 18. maí 2012

Mánudagur
Soðinn fiskur, kartöflur og grænmeti
Þriðjudagur
Bixímatur, kartöflur og agúrka
Miðvikudagur
Plokkfiskur, kartöflur og salat
Fimmtudagur
Uppstigningardagur - frí
Föstudagur
   Kjúklingapottréttur, grjón og salat

Nýjustu myndir

Jóla, jóla 2010

Skoða myndasafn

Jólaball foreldrafélagsins 2010

Skoða myndasafn