Elstu barna verkefni

Á Garðaseli byrja verkefni elstu barna um miðjan september og líkur um miðjan maí með  útskriftarferð og útskriftarhátíð. Kennarar elstu barna þetta skólaár eru Anna Marie Kjærnested, Inga Sif Gísladóttir og Fjóla Ævarsdóttir. Við munum leggja áherslu á málrækt, hreyfingu, samskipti, heimspeki og undirbúning fyrir næsta skólastig.
Það verða 24 börn í elstu barna verkefnum í vetur og skiptum við þeim í þrjá hópa. Vinnustundir elstu barna er fjórum sinnum í viku 60 mínútur í senn. Við munum vinna að því að undirbúa börnin sem best fyrir grunnskólann. Markmiðin sem við setjum okkur eru eftirfarandi:

  • Brúa bilið milli leik-og grunnskóla.
  • Að börnin verði sjálfstæðari, geti unnið sjálfstætt.
  • Að efla tilfinninga- og félagsþroska. 
  • Að þau læri að bíða eftir aðstoð og taka tillit til hvers annars.
  • Að efla undirstöðu fyrir lestrar-og stærðfræðinám.
  • Að barnið upplifi grunnskólann sem eðlilegt framhald leikskólans.

Foreldrar elstu barna fá vinnuáætlun fyrir hverja viku. Vinnuáætlunin samanstendur af verkefnum úr "Markvissri málörvun", "Ljáðu mér eyra", "Ótrúleg eru ævintýri", lestri framhaldssagna, námsefninu "Svona gerum við" og lífsleikni.

Unnið er með grunnþætti hljóðkerfisvitundar þ.e.a.s. rím, samstöfur, samsett orð, hljóðgreiningu, margræð orð, orðhlutaeyðing og hljóðtengingu. Hljómpróf eru tekin á elsta árgangi skólans að hausti, sex mánuðum síðar er Hljóm lagt aftur fyrir þau börn sem komu út með slaka og mjög slaka færni. Unnið er sérstaklega með þau börn sem sýna litlar framfarir.Farið verður með elsta hópinn markvisst á bókasafn Reykjanesbæjar í vetur.

Heimspeki er fyrir elsta árgang. En markmiðið með þeim tímum er að hvetja nemendur til sjálfstæðrar hugsunar, fá nemendur til að velta fyrir sér tilverunni og horfa á hana með opnum augum.

Ritmálið er sýnilegt, mikið er merkt, hver nemandi á nafnspjald merkt sínu nafni sem hann notar í valtímum skólans. Einnig eru bókstafir, tölustafir og form sýnileg á veggjum deildum.

Í vettvangsferðum og kraftgöngu elstu barna er hugað vel að rit-og lesmáli í umhverfinu. Nemendur fá markvissa hreyfingu tvisvar í viku, þar læra þau m.a. inná líkama sinn.

Tölvur eru inn á öllum deildum, þar fá nemendur að kljást við skemmtilega og þroskandi leiki sem m.a. þjálfar þau í móðurmáli, léttri stærðfræði, ýmis hugtök eru tekin fyrir, form, fjöldi, bókstafir, tölustafir og mynstur.

Einingakubbar eru nýttir í elstu barna verkefnum þar fá nemendur að kynnast stærð, þyngd, jafnvægi/burðarþoli kubbana og fjölda. Hugtökin stærri en, minni en, færri en, fleiri en, jafnmargir eru einnig tekin fyrir.

Hefð er fyrir heimsóknum leikskólabarna í heimaskólann yfir skólaárið.

Aðalmarkmið samstarfs leikskóla og grunnskóla er að stuðla að vellíðan barnanna við flutning á milli skólastiga.

Hafa samband

420 3160 gardasel@reykjanesbaer.is

Matseðill vikunnar

14. - 18. maí 2012

Mánudagur
Soðinn fiskur, kartöflur og grænmeti
Þriðjudagur
Bixímatur, kartöflur og agúrka
Miðvikudagur
Plokkfiskur, kartöflur og salat
Fimmtudagur
Uppstigningardagur - frí
Föstudagur
   Kjúklingapottréttur, grjón og salat

Nýjustu myndir

Jóla, jóla 2010

Skoða myndasafn

Jólaball foreldrafélagsins 2010

Skoða myndasafn