Að byrja í leikskóla

Í upphafi leikskólagöngu barnsins þarf að gefa því góðan tíma til að aðlagast leikskólanum á farsælan hátt. Aðlögunartíminn er þáttur í uppeldisstarfi leikskólans og skíptir hann miklu máli fyrir barnið og foreldra þess. Þennan tíma ber að skipuleggja í samráði við foreldrana, gefa þeim tækifæri til þess að dvelja fyrst um sinn með barninu og kynnast um leið leikskólanum og starfsháttum hans. Markmiðið er að efla öryggiskennd og vellíðan barnsins og foreldra þess í framandi aðstæðum í leikskólanum. Á aðlögunartímabilinu þarf barnið að kynnast ókunnu fullorðnu fólki, ókunnum barnahóp og jafnframt þarf það að aðlagast nýjum daglegum venjum og ýmsum ríkjandi siðum í leikskólastarfinu
Aðlögun í Garðaseli tekur yfirleitt eina viku og þess ber að geta að eftirfarandi uppröðun er einungis viðmiðun. Einstaklingurinn sem er í aðlögun gæti þurft lengri eða skemmri tíma til að aðlagast leikskólanum. Að sjálfsögðu hliðrum við til eftir þörfum hvers og eins.

1. dagur. Barnið kemur í heimsókn með foreldri / forráðamanni kl. 10:00 - 11:00

2. dagur. Barnið kemur í heimsókn með foreldri / forráðamanni kl. 13:00 - 15:00

3. dagur. Barnið kemur í morgunmat kl. 8:00 og verður til kl. 11:00 eða frá kl. 9:00 - 12:00 og verður í hádegismat.

4. dagur. Barnið kemur kl. 8:00 og verður í morgunmat og hádegismat, barnið er sótt kl. 14:00

5. dagur. Barnið verður allan vistunartímann sinn.

Hafa samband

420 3160 gardasel@reykjanesbaer.is

Matseðill vikunnar

30. janúar - 3. febrúar 2012

Mánudagur
Soðin ýsa, kartöflur og gulrætur
Þriðjudagur
Spaghettí í kjötsósu 
Miðvikudagur
Fiskréttur, kartöflur og salat
Fimmtudagur
Grjónagrautur, heimabakað brauð, egg og álegg
Föstudagur
Súrsætur grísapottréttur, grjón og salat

Nýjustu myndir

Jóla, jóla 2010

Skoða myndasafn

Jólaball foreldrafélagsins 2010

Skoða myndasafn