Málefni leikskóla heyra undir Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar. Fræðsluráð hefur umsjón með málefnum leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla í umboði bæjarstjórnar. Fræðslustjóri er Eiríkur Hermannsson. Leikskólafulltrúi er Guðríður Helgadóttir, hún hefur yfirumsjón og eftirlit með faglegu starfi og rekstri leikskóla. Sérkennslufulltrúi er Ingibjörg Hilmarsdóttir, hún hefur yfirumsjón og veitir ráðgjöf vegna sérkennslu til starfsfólks og foreldra. Börn í leikskólum Reykjanesbæjar hafa aðgang að sérfræðiaðstoð á vegum skólaskrifstofu. Á hennar vegum eru starfandi talmeinafræðingur og sálfræðingar. Sími á Fræðsluskrifstofu er 421-6700.