Kennarar leikskólans eiga rétt á þremur skipulagsdögum á ári. Þeir fara fram á virkum dögum og þá er leikskólinn lokaður. Þessir dagar eru nýttir til faglegrar samvinnu og endurskipulagningar. Foreldrum er tilkynnt um þessa daga með mánaðar fyrirvara.