Vistgjöld eru greidd fyrirfram. Greitt er fyrir einn mánuð í senn og gjald lækkar ekki þó barn sé fjarverandi. Hægt er að velja um að greiða vistgjöld annað hvort með greiðslukorti eða greiðsluþjónustu bankanna.
Systkinaafsláttur: Ef barn á systkini í leikskóla, í frístundarskóla eða hjá dagmóður (miðast við 18 mánaða) er veittur afsláttur á vistgjöldum. Fyrir fyrsta barn er greitt 100%, annað 75%, þriðja og fjórða barn 60%. Skuldi foreldrar/forráðamenn þrjá mánuði er barninu sagt upp leikskólarýminu og skuldin sett í innheimtu lögfræðings. Gagnkvæmur uppsagnarfrestur er einn mánuður og miðast við 1. hvers mánaðar, sama gildir um vistunartímabreytingar. Dvalargjald barns er reiknað í helium og hálfum klukkustundum. Foreldrar/forráðamenn eru vinsamlegast beðnir um að virða umsamdan dvalartíma. Vinnutími starfsmanna er skipulagður með tilliti til dvalarsamninga.
Þeir foreldrar sem óska eftir að fá niðurgreiðslu á leikskólagjöldum, þurfa að sækja um það á þar til gerðu eyðublaði hjá leikskólafulltrúa á Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar. Til að greiða lægra gjald þarf að framvísa vottorði Tryggingarstofnunar um greiðslu mæðra/feðralauna. Breyting kemur til framkvæmda 1. næsta mánaðar eftir samþykkt umsóknar. Endurnýja þarf umsóknina fyrir 1. September ár hvert.