Æskilegt er að foreldrar hagi lyfjagjöf barna sinna þannig að leikskólinn þurfi ekki að bera ábyrgð á henni. Ef ekki verður hjá því komist gilda eftirfarandi reglur um lyfjagjöf og meðferð lyfja.
- Yfirlýsing frá lækni um nauðsyn þess að lyfjagjöfin fari fram í leikskóla skal liggja fyrir.
- Skrifleg fyrirmæli frá foreldrum um lyfjagjöfina.
Öll lyf eru geymd í læstum hirslum inn á hverri deild þar sem börn ná ekki til. Deildarstjóri felur einum leikskólakennara ábyrgð á lyfjagjöf til barns/barna.