Æskilegt er að tilkynnt séu forföll barna til leikskólans. Veikist barn eða slasast í leikskólanum ber deildarstjóra að meta ástand þess. Ef tilefni er til lætur hann foreldra eða aðra aðstandendur vita svo þeir geti gert ráðstafanir til að sækja það. Ef ekki næst í þá verður að hlúa að barninu eins vel og hægt er eða fara með barnið á slysamóttöku HSS. Börn í leikskólum Reykjanesbæjar eru slysatryggð á meðan þau dvelja í leikskólanum.
Deildarstjóri í samráði við foreldra metur þörfina fyrir inniveru eftir veikindi barns. Taka skal tillit til aðstæðna hverju sinni.