Mikilvægt er að allur fatnaður barnanna sé vel merktur. Mörg börn ganga um leikskólann dag hvern og alltaf er hætta á að fatnaður týnist. Einnig er mikilvægt að klæðnaður hefti ekki barn í leikgleði sinni. Í leikskólanum er unnið með margvíslegan efnivið því getur málning, lím og fleira farið í fatnað barnanna þó starfsfólk leiti allra leiða til að það gerist ekki. Nauðsynlegt er að aukafatnaður sé í tösku barnanna ef óvænt slys verða. Mikilvægt er að börnin hafi með sér hlýjan fatnað, regnfatnað, stígvél, húfu og vettlinga í tösku vegna síbreytilegrar veðráttu hér á landi.