Lögin í nóvember 2010
Gamli Nói
Gamli Nói, Gamli Nói
keyrir kassabíl
Hann kann ekki að stýra
brýtur alla gíra
Gamli Nói, Gamli Nói
keyrir kassabíl
Gamli Nói, Gamli Nói
Gekk á smíðapall
að hamra, hefla og saga
hamaðist alla daga
svo kom flóðið, svo kom flóðið
þetta vissi karl
Gamli Nói, Gamli Nói
er að poppa popp
hann kann ekki að poppa
lætur poppið skoppa
Gamli Nói, Gamli Nói
er að poppa popp
Gamli Nói, Gamli Nói
er að poppa popp
Gamli Nói, Gamli Nói
er að kyssa frú
hann kann ekki að kyssa
lætur frúna pissa
Gamli Nói, Gamli Nói
er að kyssa frú
Á íslensku má alltaf finna svar
Á íslensku má alltaf finna svar
og orða stórt og smátt sem er og var,
og hún á orð sem geyma gleði´og sorg,
um gamalt líf og nýtt í sveit og borg.
Á vörum okkar verður tungan þjál,
þar vex og grær og dafnar okkar mál.
Að gæta hennar gildir hér og nú,
það gerir enginn - nema ég og þú.
Kvæðið um fuglana
Ljóð: Davíð Stefánsson
Snert hörpu mína, himinborna dís,
svo hlusti englar Guðs í Paradís.
Við götu mína fann ég fjalarstúf
og festi á hann streng og rauðan skúf.
Úr furutré, sem fann ég út við sjó,
ég fugla skar og líka úr smiðjumó.
Í huganum til himins oft ég svíf
og hlýt að geta sungið í þá líf.
Þeir geta sumir synt á læk og tjörn,
og sumir verða alltaf lítil börn.
En sólin gyllir sund og bláan fjörð
og sameinar með töfrum loft og jörð.
Ég heyri fjarska villtan vængjaþyt,
um varpann leikur draumsins perluglit.
Snert hörpu mína himinborna dís,
svo hlusti englar Guðs í Paradís.