Skilaboðaskjóða

2. Febrúar 2012

Myndir eru komnar inn af bóndadagskaffinu og frá leik úti og inni í Janúar. Einnig eru myndir sem við tókum þegar börnin voru með leikrit. Við erum að vinna með ævintýrið um Búkollu í tengslum við listahátíð barna sem haldin verður í Duus húsum í vor og setjum reglulega upp leikrit með búningum þar sem skipts er á leikurum og finnst börnunum þetta mjög skemmtilegt.

Krystyna er komin aftur eftir fæðingaorlof og er Sigrún farin á Lund.

Með kveðju kennarar á Hvammi

 

22. Desember 2011

Við viljum minna enn og aftur að passa upp á að nóg sé að aukafötum í töskunum, börnin hafa verið nokkuð blaut þegar þau koma inn og sum ekki með aukaföt. Gott er að hafa Flíspeysu, ullasokka, húfu og lágmark 2 pör af vettlingum í töskunni.

                     Kveðja kennarar á Hvammi

Nýjar myndir eru komnar inn af okkur þegar við fórum í jólarútuna, buðum mömmu og pabba í piparkökukaffi og þegar við höfum verið að leika í snjónum og fl endilega kíkið á þær

               Kveðja kennarar á Hvammi

Foreldrakaffi er á morgunn 2. Desember frá 08:30-09:30 vonumst til að sjá sem flesta

                                   Kveðja Kennarar á Hvammi

Jasmine Ronja er hætt á deildinni hjá okkur og óskum við henni velfarnaðar á nýjum slóðum.

                                  Kveðja Kennarar á Hvammi

Þar sem hefur kólnað svo í veðri biðjum við foreldra vinsamlegast um að koma með hlý föt á börnin sín þ.e kuldagalla, húfur, hlýar peysur , ullasokka og gott er að hafa auka vettlinga

                              Kveðja kennarar á Hvammi 

Saga Hilma er hætt á deildinni okkar og er hún farin í afleysingar en Sigrún Ósk Magnúsdóttir hefur hafið störf á deildinni og bjóðum við hana velkomna til starfa

Jasmine Ronja var að byrja á deildinni okkar og við bjóðum hana velkomna

                                              Kveðja Kennarar á Hvammi

Katrín Ragna er hætt á deildinn okkar og er farin á Akur óskum við henni velfarnaðar á nýjum slóðum

                                               Kveðja kennarar á Hvammi

 

Katrín Ragna var að byrja á deildinni okkar og bjóðum við hana velkomna

                                                Kveðja kennarar á Hvammi

 

 

Abdallah Rúnar er hættur í leikskólanum okkar og er fluttur á nýjar slóðir óskum við honum velfarnaðar í framtíðinni.

                                                               Kveðja kennarar á Hvammi

 

Nýjar myndir komnar inn á heimasíðuna 7. september

                       kveðja kennarar á Hvammi

 

Saga Hilma Sverrisdóttir hefur hafið störf á Hvammi og við bjóðum hana velkomna til starfa.

Aleksandra var að byrja í leikskólanum okkar og bjóðum við hana velkomna

Anna Valdís leiðbeinandi er komin í barneignarleyfi

                                                        Kveðja Kennarar á Hvammi

 

 

Sigurgeir Máni er hættur á Þúfu, við óskum honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Vagna vatnsskorts á morgun 26.maí verður leikskólinn ekki opnaður fyrr en klukkan 10:00 um morguninn. Ekki er leyfilegt að hafa opið samkvæmt heilbrigðiseftirliti þegar ekkert rennandi kalt vatn er.

                                                                                                                                                              kveðja kennarar

Leikskólinn verður lokaður þann 20. maí vegna skipulagsdags.

Aþena Emma var að byrja í leikskólanum okkar og bjóðum við hana velkomna í hópinn okkar á Þúfu

Það eru komnar nýjar myndir á vefinn.

Leikskólinn verður lokaður til klukkan 10:00 þann 5. apríl n.k. vegna starfsmannafundar.

Jólarúta og jólaball

Börnin fóru í jólarútu um bæinn sl. þriðjudag (14. des.) til að skoða ljósadýrðina í Reykjanesbæ. Tveir jólasveinar voru með í ferðinni og buðu þeir börnunum upp á piparkökur og jólasöngva. þann 15. desember var börnunum og kennurum boðið upp á hangikjöt með öllu tilheyrandi, þá var farið í salinn og slegið upp jólaballi. Allir virtust skemmta sér vel og nú hafa myndir verið settar inn á heimasíðuna

Kennarar og börn á Þúfu óska öllum

gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári

með þökk fyrir það liðna

 

Nóvember og desember 2010

við höfum haft nóg að gera í nóvember og það sem af er desember. Börnin hafa verið að baka piparkökur og í framhaldinu boðið foreldrum upp á piparkökur, kaffi, djús og rúnstykki. Þá höfum við verið að vinna að jólagjöf með börnunum til foreldra sinna. Við erum dugleg að syngja jólalögin og reynum að eiga margar kósí stundir í leikskólanum.

Myndir frá piparkökubakstri og fleiri uppákomum eru komnar inn á myndabankann. þá er einnig búið að setja myndir inn á heimasíðu Garðasels sem teknar voru á jólaballinu í Njarðvíkur-skóla

Kennarar og börn óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári

 

Ágúst 2010

Nýjar myndir komnar inn :)

 

Apríl 2010

Rauður Dagur Rauður dagur Rauður Dagur Rauður Dagur 23. apríl 2010 (sjá hér að neðan)

Tilkynning:

Frá og með 12. apríl mun Anna Valdís vera með vinnutímann 09:00-13:00.

Í hennar stað eftir hádegi mun Rut Vestmann vera með vinnutímann 13:00-17:15

Þá mun Krystyna K. Árnason  hefja störf á deildinni, hennar vinnutími verður frá 13:00-17:00

þann 23. apríl ætlum við að fagna sumardeginum fyrsta í salnum. Við ætlum að hafa lita-þema þ.e. allir reyni að koma í e-u rauðu eða með eitthvað rautt.

23. apríl er dagur bókarinnar, börnin mega koma með bækur að heiman.

Dagana 26. - 30. apríl er umhverfisvika. Við munum taka þátt í henni með því að skoða nærumhverfið okkar og taka til höndum og hreinsa til.

þann 30. apríl mun Varða sjá um fagnaðar fund á sal.

 

Leikskólinn verður lokaður föstudaginn 19.mars n.k. vegna skipulagsdags.  Þá munu leikskólar Reykjanesbæjar m.a. halda sameiginlegan námskeiðsdag.

Sönglögin sem við syngjum í mars og apríl eru m.a. Garðasels-söngurinn, Ég lonníetturnar, Það búa litlir dvergar, Dúkkan hennar Dóru, Lagið um það sem er bannað, Pétur dansar, Karl gekk út um morguntíma og fullt af ferskeytlum. Ef ykkur vantar texta við lögin þá er ekkert mál að nálgast þá hjá deildastjóra.

 

Jólamatur og jólastund

þann 16. desember munum við borða saman jólamat og horfa á helgileik í flutningi eldri barna á Hvammi og Vörðu. Í lokin verður slegið upp jólaballi og sungin saman jólalög.

kveðja - kennarar á Þúfu

 

Börnin fóru í jólarútuna 10. desember - þau voru mjög ánægð með ferðina og jólasveinana. Við höfum sett inn myndir úr ferðinni.

kveðja - kennarar á Þúfu

 

 

myndir, myndir, myndir

höfum setti inn myndir af piparkökubakstri, piparkökukaffi og fleiru. Endilega kíkið á og hafið gaman af.

 

10. des. 2009

þann 10. förum við í jólarútuna kl: 10:30 við munum keyra um bæinn í rútu eða strætó og skoða ljósadýrðina sem tilheyra jólunum. 

 

16. nóvember

Í dag héldum við upp á dag íslenskrar tungu. Við á Þúfu fórum á fagnaðarfund inn á Lund og sungum saman. Þúfubörnin sungu síðan fyrir krakkana og kennarana á hinum deildunum gamla dægurlagið "Fríða litla lipurtá" við mikin fögnuð viðstaddra.

kveðja börn og kennarar á Þúfu

Nóvember 2009

Kæru foreldrar, leikskólinn verður lokaður mánudaginn 23. nóvember vegna skipulagsdags kennara

Piparkökubakstur

Miðvikudaginn þann 25. nóvember ætlum við á Þúfu að baka piparkökur. Það væri gott ef börnin gætu komið með svuntur.

kveðja, kennarar á Þúfu 

september 2009

MYNDIR, MYNDIR

nýjar myndir hafa verið settar inn á myndabankann á þúfu. Endilega skoðið og hafið gaman af.

kveðja, kennarar á Þúfu

 

*****Nýr Kennari á Þúfu

þann 29. september byrjaði Gunnhildur Ásgeirsdóttir á Þúfu frá 08:00 - 14:00

Gunnhildur hefur starfað í leikskólanum sl. 15 ár og er það heiður að fá hana til starfa inn á Þúfu.

við bjóðum Gunnhildi velkomna

kveðja, kennarar á Þúfu

 

September og október 2009

Hópavinna hefst í lok september

Þá erum við farin af stað með hópavinnuna. Á tímanum milli 10:00 og 11:00 skiptum við börnunum upp í fjóra hópa og förum í leiki og fræðumst um ýmislegt í umhverfi okkar í gegnum leikinn. Á mánudögum er Petrúnella með skipulagða hreyfingu í salnum fyrir alla hópana. þar sem börnin eru frá 4 - 6 í hóp þá eru þau að fá góða og markvissa þjálfun í hreyfingu. Hver hópstjóri fylgir sínum hóp í salinn og aðstoðar Petrúnellu og börnin í hinum ýmsu æfingum. á þriðjud., miðvikud. og fimmtudögum er hópavinna inni á deild þá er hópstjórinn búin að skipuleggja leiki ásamt verkefnum fyrir börnin. Föstudagana notum við til að sinna afmælum og ýmsum uppákomum s.s. fagnaðarfundi á sal, þá hittast öll börnin í leikskólanum og syngja saman eða eru með stutta leikþætti.

Kveðja, Hrönn Guðmundsdóttir

 

Maí 2009

 það er venja hjá okkur að hafa sameiginlegan inni - og útiíþróttadag í leikskólanum okkar. Inni íþróttadaguirnn er venjulega haldin í upphafi skólaárs og útiíþróttadagurinn í lok skólaársins. að þessu sinni var úti íþróttadagurinn haldin 19. maí í blíðskapar veðri eins og myndirnar bera með sér sem eru inni á myndabankanum.

þemalok voru 22. maí og þá fengum við hamborgara, franskar og ís í eftirrétt, og leyndi ánægjan sér ekki hjá kennurum og börnum.

leikskólinn lokar tímabundið yfir sumarið og þá verður farið í ýmslegt sem þarf að lagfæra á deildum leikskólans.

leikskólinn verður lokaður frá 20. júlí - 18. ágúst 2009

kveðja Hrönn Guðmundsdóttir, deildarstjóri á Þúfu

 

Apríl 2009

GLEÐILEGT SUMAR OG TAKK FYRIR VETURINN

Nýjar myndir inn á myndabankann, myndir þegar börnin tóku til í kringum leikskólann sinn í tilefni dags umhverfisins og þegar við vorum á fagnaðafundi á sal sem heyrir undir apríl fjör

síðasta vetrardag þann 22. apríl er ætlunin að hafa appelsínugulan dag. þá mætum við í einhverju appelsínugulu t.d. sokkum, peysu, eða með eitthvað appelsínugult t.d. spennu, teygju . Við ætlum síðan að vera með fagnaðarfund á sal fyrir börn og kennara. þá syngjum við og dönsum,

þann 25. apríl er dagur umhverfisins. Af því tilefni ætlum við að fara út og tína rusl í kringum leikskólann.

mars 2009

kæru foreldrar og forráðamenn, nú eru loksins komnar myndir inn á heimasíðuna. Dæmi um myndir eru: Bóndadagur, Konudagur, Öskudagur, Hattadagur og úr leik og starfi í leikskólanum.

vonandi verður ekki svona löng bið á nýjum myndum í framtíðinni

kveðja Hrönn Guðmundsdóttir, deildarstjóri á Þúfu.

 

22. desember 2008

Nú eru 2 dagar til jóla og spenningur og tilhlökkun barna og fullorðina að magnast. 1. og 2. desember bökuðu börnin piparkökur og smökkuðu á deiginu og buðu síðan foreldrum upp á hressingu eftir jóladansleikinn sem haldin var í salnum. þessi dagur var mjög góður og mikil mæting hjá foreldrum og öðrum ættingjum barnanna.

þá var farið í jólarútuna þann 17. des að skoða jólaljósin í bænum. tveir jólasveinar voru með í för, þeir hurðaskellir og bjúgnakrækir.

jólamaturinn var síðan í boði sl. föstudag þar sem boðið var upp á hangikjöt með öllu tilheyrandi, börnunum fannst nú mest spennandi að fá gos með matnum. þennan dag fóru allir krakkar á Garðaseli í salinn og dönsuðu í kringum jólatréð og sungu með. þetta var mjög skemmtilegur dagur.

ég vil minna foerldra á netfangið hjá deildarstjór á Þúfu: hronn.gudmundsdottir@reykjanesbaer.is

Að lokum viljum við óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári, með þakklæti fyrir liðið ár

fyrir hönd kennara á Þúfu

Hrönn Guðmundsdóttir







þá er komin desember 2008

Loksins kemur eitthvað í skilaboðaskjóðuna. Í október var haldin inni-íþróttadagur sem tókst í alla staði mjög vel. Við settum upp stöðvar inni á deild þar sem barnahópnum var skipti í þrjá minni hópa. Öll börnin tóku þátt og voru áhugasöm og virk.

Í lok nóvember var hldin vinavika starfsfólks leikskólans. Það var mikil gleði og samvinna meðal starfsmanna að giska á hver væri leynivinur hvers. Ef þið kæru foreldrar hafið orðið vör við pukur og starfsmenna að sníglast í hinu og þessu horninu þá er það vegna þess að litlar og fallegar orðsendingar voru að komast á réttan stað til leynivinar. þessari viku lauk svo síðast-liðin föstudag þar sem skipst var á litlum gjöfum við mikla ánægju.

Frá 1. desember erum við í fríi frá hinum hefðbundnu hópavinnutímum, í staðin erum við að undirbúa jólin. Í morgun þ.e. 1. des. bökuðum við piparkökur sem börnin bjóða síðan uppá á jólafagnaði á sal n.k. föstudag. Nánar auglýst síðar. Þá kemur sú stund að mála skal í glugga, þá eru öllum börnum á deildinni úthlutaður partur á glugga sem þau mála síðan. við komum til með að syngja jólalög þennan mánuðinn og reynum eftir fremsta megni að gera þennan mánuð rólegan og yndislegan tíma.

þá er hér stutt orðsending varðandi starfsmannahald á þúfu.

Nína er komin í barneingarleyfi og mun Íris leysa hana af fram til 11. des. þá kemur inn nýr starfsmaður sem heitir Anna og verður vinnutími hennar frá 9-17:15.

Sóley mun hefja skólagöngu eftir áramót en enn hefur ekki verið ráðið í hennar stöðu.

eftir sem áður munu Hrönn og Ruth starfa á deildinni

við viljum þakka ykkur þá þolinmæði sem þið hafið sýnt okkur varðandi breytingarnar á starfsmannahaldinu á Þúfu

Með þökk fyrir samstarfið

kennarar á Þúfu.



Velkomin í leikskólann haustið 2008

Aðlögun eldri barna yfir á Hvamm og Vörðu hefur gengið vel og gerum við ráð fyrir að öll börn verði komin á nýja deild í september lok.

Þá hefur aðlögun nýrra barna gengið vel og bjóðum við bæði börn og foreldra velkomin í leikskólann.

Gert er ráð fyrir að hópavinna og annað þemastarf hefjist í endaðan september

kveðja, kennarar á Þúfu









sumarhátíð Garðasels 2008

MYNDIR KOMNAR INN Á HEIMASÍÐUNA

Dagurinn var mjög góður og skemmtilegur, allt var eins og best verður á kosið: veðrið, börnin,foreldrarnir, ættingjar og vinir og kennarar í frábæru fjöri.







Myndlistasýning í bókasafni Reykjanesbæjar 16/6-27/6
Mánudaginn 16. júní var sett upp sýning með verkum Garðaselsbarna í bókasafni Reykjanesbæjar. Sýningin verður opin í tvær vikur eða til 27. júní. Sýningin er liður í sumarsýningum bókasafnsins, en allir leikskólar Reykjanesbæjar sýna verk sín þar í sumar.
Kveðja kennarar Garðasels

myndir í júní 2008 komnar inn



þessi er bara sæt, með sólgleraugu og snuð í hvíldinni



myndir, myndir

Nýjar myndir komnar inn, teknar þegar við fórum í Duus hús á listasýningu barna 2008. Það voru eldri börnin sem lögðu leið sína fótgangandi á þessa sýningu.

einnig er mynd af hunangsflugunni hennar Jönu

góða skemmtun - kveðja kennarar á Þúfu





Maí 2008

Myndir komnar inn fyrir maí

það er ýmislegt að gerast á myndunum t.d. skemmtun í sal, Jana með bjöllu, krakkar að leika, teikna, borða og fleira.



Aukafatnaður !!!!

Nú er veðrið að skána og vonandi geta börnin farið að geyma kuldagallann heima.

þegar börnin eru að hætta með bleiu þá er nauðsynlegt að koma með nokkra umganga af fatnaði s.s. buxur, nærbuxur, sokka og jafnvel skó.



Vistunartími - ath!!!

við viljum benda foreldrum á að virða vistunartímann. Ef eitthvað kemur uppá í fjölskyldu þá er alltaf reynt að koma til móts við foreldra t.d. ef barnið þarf að koma aðeins fyrr eða vera sótt aðeins seinna.

kveðja kennarar á Þúfu



Apríl 2008

Myndir, myndir.

Nú er búið að setja inn myndir aprílmánaðar. myndirnar eru mjög lýsandi og skemmtilegar. það má sjá börn sem eru nýkomin úr hvíld og eiga erfitt með að halda sér vakandi. Börn að kubba ýmislegt s.s. sjóræningaskip, turna, heimili og verkstæði svo eitthvað sé nefnt. Börn í hlutverkaleik t.d. á sjúkrahúsi, lítil börn í rimlarúmi, söngleik, hárgreiðsluleik og fl. Þá má sjá myndir þegar börnin fengu afhent endurskins-vesti frá TM, afhending bókarinnar "Þetta eru mínir einkastaðir" sem foreldrafélagið gaf öllum börnum í leikskólanum. Gunna deildarstjóri á Lundi kom með sjó-krabba til að sýna börnunum á Þúfu og gaman var að fylgjast með börnunum nálgast þennan skrítna krabba.

kveðja kennarar á Þúfu





17. mars 2008

foreldrasamtölin fóru fram þann 7. þessa mánaðar. Foreldrar mættu mjög vel í gefna tíma. Niðurstaða samtalana voru mjög góð og í samræmi við það sem við í leikskólanum höfum verið að vinna með í hópavinnu, samveru og frjálsum leik. það sem við á deildinni meigum virkja betur er útiveran, og erum við að vinna í því.

kveðja kennarar á Þúfu







Mars 2008 --- foreldrasamtöl

þann 7. mars verður leikskólinn lokaður vegna skipulagsdags kennara. Þann dag fara foreldrasamtölin fram. Foreldrar fá upplýsingar um tímasetningu samtalsins viku áður.

kveðja Kennarar á Þúfu



Febrúar 2008

febrúar er um það bil að kveðja með konudaginn í endan. Börnin buðu mömmu, ömmum, systrum og frænkum upp á konukaffi þann 22. febrúar. Boðið var upp á eplaköku með rjóma einnig rúnstykki með osti og skinku. Það var gaman að fá svo föngulegar konur í kaffi og gleðin var ríkjandi. Nú eru komnar myndir inn af þessum merka degi í myndabankann.

kveðja kennarar á Þúfu



Janúar 2008

gleðilegt ár 2008

jæja þá er þorrinn byrjaður, krakkarnir á Þúfu buðu feðrum, öfum og frændum upp á þorra smakk ásamt rúnstykkjum, kaffi og heitu kakói. því miður bregðast krosstré sem önnur og deildarstjórinn gleymdi að taka myndir af gleðskapnum þannig að þið verðið bara að trúa því að þessi stund var mjög skemmtileg. Börnin höfðu gaman af því að bjóða upp á hákarl en fannst hann helst til of lítill þ.e.a.s þau höfðu hugmynd um að hákarl væri mjög stór og jafnvel grimmur.

þessa dagana erum við að undirbúa okkur fyrir foreldrasamtölin sem verða sennilega í mars. við erum að vinna að atferlislistum sem gefa okkur grófa mynd af stöðu barnanna með tilliti til þroska þeirra og aldurs.

kveðja kennarar á Þúfu.

desember 2007

Piparkökubaksturinn fór fram 21. nóvember sl. það var mikið fjör og gaman.

Föstudaginn 7. desember kl: 14:30 ætla börnin að bjóða foreldrum sínum í salin og dansa í kringum jólatréð, kannski koma einhverjir skemmtilegir karlar í heimsókn, hver veit. Eftir skemmtunina í salnum bjóða börnin upp á piparkökusmakk og kaffi inni á deild.

kveðja frá börnum og kennurum á Þúfu





Nóvember 2007

kennarar sem starfa á Þúfu eru: Hrönn, Ruth, Nína, Sigga og Brynja. Guðlaug leysir af í undirbúningstímum á mánudögum





Október 2007

Í þessum mánuði byrjuðum við í hópavinnu. Í hverjum hóp eru 5 - 7 börn ásamt einum kennara sem er hópstjóri. þessir tímar eru á þriðjudögum og miðvikudögum. Á mánudögum er leikfimi á Þúfu, þá förum við með 14 börn í einu í salinn og setjum upp stöðvar þar sem börnin spreyta sig. En á fimmtudögum erum við í stöðvaþjálfun inni á deild.

Þann 17. október var inni-íþróttadagur í leikskólanum þá voru settar upp stöðvar fyrir eldri deildirnar í sal og á gangi, en yngri börnin notuðst við deildina sína.





10. ágúst 2007

Lús, lús.

Lúsin hefur gerst boðflenna hér í leikskólanum. Við viljum biðja ykkur um að kemba hár barna ykkar daglega og gera viðeigandi ráðstafanir ef lúsar verður vart. Í leikskólanum er hægt að nálgast upplýsingar um hvað sé hægt að gera einnig í apótekum. Í dag er lúsin ekki árstíðabundið fyrirbæri heldur er hægt að eiga von á henni allan ársins hring. því er mikilvægt að allir séu virkir í því að skoða og fylgjast með. Að fá lús er ekki eitthvað hættulegt heldur er það hvimleitt, einnig viljum við benda ykkur á að lús gerir ekki mannamun eða leitar eftir óhreinu hári. það geta allir fengið lús.

kveðja kennarar á Þúfu



aðlögun barna fædd árið 2005 og 2004

nú er aðlögun í fullum gangi. Börnin sem eru fædd árið 2003 eru að færast niður á Vörðu (eldri deild) og aðlögun barna sem fara á Hvamm (eldri deild) hefst í ágúst.

við erum einnig að taka á móti börnum sem eru að byrja í leikskóla og eru fædd árið 2005, einnig erum við að taka á móti tveimur börnum fædd 2004, til þess að fylla upp í barngildin samkvæmt reglugerð og samningum.



Garðasel opnar eftir sumarfrí 9. júlí 2007

Börn, foreldrar og kennarar verið velkomin til starfa á ný eftir 5 vikna sumarfrí.



Kveðja kennarar á Þúfu







23. apríl 2007

skipulagsdagur 27. apríl 2007

Næst komandi föstudag verður leikskólinn lokaður vegna skipulagsdags kennara í Garðaseli.

Síðasta vetrardag fórum við í salinn í boði Lundar og sungum saman sumarlög í tilefni sumardagsins fyrsta 19. apríl 2007. það var mjög gaman að sjá hvað allir voru samtaka um að láta hátt til sín heyra. Börnin voru með gular kórónur á höfði og hátíðlegt yfir að líta.



Sumardagurinn fyrsti



23. apríl 2007

LÚS, LÚS, LÚS.

Enn á ný hefur lúsin látið á sér kræla í leikskólanum. það er því nauðsynlegt að kemba hár barnanna og fjölskyldna þeirra á hverjum degi þar sem hún virðist frekar lífsseig og erfitt að losna við hana. Í leikskólanum getið þið fengið góð ráð til að takast á við þennan vanda. það er því ekki nóg að þeir sem hafa fengið lús kembi hár sitt heldur og einnig þeir sem umgangast þann sem hefur fengið í sig lús.

Ástæðulaust er að óttast að vera í návistum við þann sem hefur fengið lús í hárið ef viðkomandi hefur fengið meðferð við þessum leiðinda gesti, með þar til gerðum sjampóum og efnum. Hægt hefur verið að kaupa lúsafælu í apótekum, endilega spyrjið afgreiðslufólkið þar um ráð.

Með kveðju kennarar á Þúfu

02.04. 2007

Foreldrasamtölum lokið og framkvæmdum lokið á Þúfu

við erum flutt inn á Þúfu og erum afskaplega ánægð með árangurinn og enn og aftur þökkum við ykkur þolinmæðina. við vitum að þessar tilfæringar höfðu áhrif á mörg börn en við vinnum bara rólega í því að ná jafnvægi aftur bæði börn og kennarar.

Foreldrasamtölunum lauk formlega 30. mars og þökkum við þær undirtektir sem foreldrar sýndu með því að mæta í samtölin. Við erum mjög ánægðar með foreldra og börn á Þúfu. þetta eru virkir og flottir einstaklingar.

kveðja kennarar á Þúfu.

12. mars 2007

Nú fer að líða að því að framkvæmdum á Þúfu fari að ljúka. Við gerum ráð fyrir að deildin verði tilbúin í þessari viku (12. - 16. mars). Við á Þúfu viljum þakka foreldrum og öðrum þá þolinmæði sem þessar lagfæringar kröfðust.

með kveðju kennarar á Þúfu

5. mars 2007

Kæru foreldrar og forráðamenn

Þann 27. mars til 30. mars verða foreldrasatöl á þúfu. Hvert samtal stendur í 15 mínútur og er nausynlegt að virða tímatakmörk. Í samtalinu verður farið yfir atferlisathugun sem við höfum unnið að í janúar og febrúar 2007, farið verður yfir daglegar venjur barnsins og félagsþroska.

Með foreldrasamtölum viljum við efla tengsl milli foreldra og kennara, með því að ræða saman í einrúmi um barnið og starfið í leikskólanum.

Það skal tekið fram að kennarar skólans eru bundnir þagnarskyldu um allt það sem snertir hagi barnanna.

kveðja Kennarar á Þúfu.



12. febrúar 2007

kæru Mömmur og Ömmur

Við viljum bjóða ykkur í heimsókn í leikskólann okkar frá kl: 8:00 - 10:00 þann 19. febrúar n.k., í tilefni konudagsins. vonumst til að sjá sem flestar

með kveðju börn og kennarar á Þúfu



VEGNA FRAMKVÆMDA Á DEILDUM

Nú er komið að framkvæmdum á Þúfu og gerum við ráð fyrir að flytjast niður í sal í nokkrar vikur. Þá munum við einnig notast við gáminn sem er staðsettur á pallinum fyrir framan Hvamm. þar inni er hlýlegt og vistlegt. Við komum til með að fá hvíldarherbergi lánað á Vörðu fyrir börnin sem fara í hvíld. Með jákvæðni og gleði að leiðarljósi mun þessi tími verða fljótur að líða. við munum taka á móti börnunum á Lundi til kl: 8:00 og eftir það í salnum þar sem við borðum morgunmat.

Kveðja kennarar á Þúfu



Vinnustundir hófust 15. janúar 2007

Hópavinna er að fara í gang, og er áætlun um starfið að fara inn á heimasíðuna. Foreldrar eru hvattir til að kíkja inn á vefsvæðið okkar og kynna sér það sem framundan er. Einnig viljum við biðja foreldra um að láta okkur á deildinni koma með ábendingar um það sem betur mætti fara á heimasíðunni hjá okkur á Þúfu

kær kveðja kennarar á Þúfu



Betra er seint en aldrei. 22. janúar 2007



Kæru foreldrar og börn

við óskum ykkur öllum gleðilegs árs og þökkum það liðna

kveðja kennarar á Þúfu

Þorrablót var haldið að venju hér í leikskólanum þann 19. janúar. Börnin buðu feðrum og öfum í morgunmat og þorrasmakk. það var gaman að sjá hversu margir sáu sér fært að mæta í morgunkaffið með börnunum og þökkum við kærlega fyrir komuna. Myndir af deginum eru komnar inn á heimasíðu í myndabankan okkar.





18. desember 2006

þennan mánuð höfum við verið að vinna að jólaföndri með börnunum, einnig höfum við haldið í samvinnu við foreldrafélag Garðasels, jólaball og börnin boðið foreldrum upp á piparkökur sem þau bökuðu í nóvember. Við fórum í jólarútuna þann 12. desember og var mikið fjör (þá fengu þau börn sem nota snuð að hafa huggunina með sér.)

Í þessum mánuði fengum við frábæra gjöf frá foreldrafélagi Garðasels, hver og einn starfsmaður fékk heilsunudd í 20 mínútur. við viljum þakka mikið fyrir þessa kærkomnu gjöf.

Við höfum reynt að hafa desember-mánuðinn sem rólegastan setið í samveru sungið, leikið og lesið.

Myndir hafa verið settar inn á heimasíðuna og viljum við benda foreldrum á að kíkja á þær og koma með ábendingar ef þurfa þykir, því betur sjá augu en auga

Með óskum um gleðileg jól, gott og farsælt komandi ár

með þökk fyrir það liðna

Alma, Ruth, Nína, Rósa og Hrönn á Þúfu









20. nóvember 2006 - Hópavinna/vinnustundir

þann 1. desember mun hin eiginlega hópavinna fara í frí, og þá er ætlunin að hefjast handa við litlar jólagjafir sem börnin munu vinna að á hópavinnutímum

Hópavinnutímar á þúfu eru sem hér segir

**mánudaga frá 8:30 - 11:00 (skipulögð hreyfing hjá Stínu í salnum)

**þriðjudaga frá 10:00 - 11:00

**miðvikudaga frá 10:00 - 11:00 (skipulögð hreyfistund inni á deild)

**fimmtudaga frá 10:00 - 11:00

******Á föstudögum er haldið upp á afmæli barnanna og fleira.





DAGUR ÍSLENSKRAR TUNGU 16. NÓVEMBER 2006

DAGUR ÍSLENSKRAR TUNGU VAR HALDIN HÁTÍÐLEGUR Á ÞÚFU FIMMTUDAGINN 16. NÓVEMBER. VIÐ BUÐUM BÖRNUNUM Á LUNDI OG 2002 ÁRGANGI Á HVAMMI OG VÖRÐU TIL AÐ FAGNA DEGINUM MEÐ SÖNG OG LEIKRITI. SUNGIN VAR VÍSA JÓNASAR HALLGRÍMSSONAR "HVER Á ÞESSI FÖT" OG LEIKRITIÐ "GEITURNAR ÞRJÁR OG TRÖLLIÐ UNDIR BRÚNNI". HÁTÍÐIN TÓKST MJÖG VEL OG Í LOKIN VAR BÖRNUNUM GEFIN KOSTUR Á AÐ KOMA FRAM MEÐ ÓSKA-ATRIÐI. MÁ SEGJA AÐ ALLIR HAFIÐ FARIÐ GLAÐIR Á SÍNA DEILD EFTIR LITLU HÁTÍÐINA OKKAR.



GEITURNAR ÞRJÁR!







MYNDIR FRÁ INNIÍÞRÓTTADEGI Í NÓVEMBER 2006 (myndirnar koma inn 21. eða 22. nóvember)



Inni-íþróttadagurinn tókst mjög vel. krakkarnir tóku vel á og einbeitning og kraftur var það sem einkenndi börnin í þrauta og stöðvaþjálfuninni.



NÝJAR MYNDIR INNI Á MYNDABANKANUM



dansinn dunar!!!!!!

VIÐ ERUM AÐ SETJA NÝJAR MYNDIR INN Á MYNDABANKANN, VERIÐ VELKOMIN OG HAFIÐ GAMAN AF

KVEÐJA FRÁ ÞÚFU



Lagfæringar á húsnæði GarðaselÍ kjölfar mikils kulda í leikskólanum sl. vetur ákvað Fasteign ehf. og Reykjanesbær að ráðast í framkvæmdir á húsnæði Garðasels til að koma í veg fyrir kulda og trekk. Mánudaginn 16. október munu framkvæmdir hefjast og verður byrjað á Vörðu. Lausum kennslustofum hefur verið komið fyrir á lóð leikskólans og munu eldri börnin á Þúfu koma til með að vera þar á meðan á framkvæmd á Þúfu stendur yfir. Áætlað er að verkið fyrir Þúfu taki u.þ.b. 1 viku.

Með ósk um jákvæð og góð viðbrögð

kennarar á Þúfu.



Október 2006

Merktur fatnaður kemst frekar til skila!

Börnin á Þúfu eru á aldrinum 2 - 3 ára, og eiga það til að fækka fötum inni á deild. þetta getur stundum valdið því að sum börn verða fyrir því að fatnaður þeirra týnist og þá sérstaklega ef hann er ómerktur. við viljum benda ykkur á ódýra lausn. hægt er að kaupa fatapenna í bókabúð og merkja með upphafsstöfum barnanna inn í merkimiða á fötum barnanna. Við sitjum nú þegar uppi með peysur, buxur, sokka og úlpu sem enginn kannast við. Fremst í fataklefa eru rauðir plastkassar með óskilamunum, vinsamlega skoðið reglulega það sem leynist í þeim. það sama gildir um snuddur og stút-glös.

kveðja, Kennarar

Hér má sjá merkimiða á nokkrum flíkum



Húfa vettlingur buxur og peysa

September 2006

Stutt frétt

Hún Svava Sigurjónsdóttir hefur kvatt okkur í bili, og komin í barneignafrí. Við óskum henni góðs gengis og þökkum fyrir liðna tíma

kv. Börn og kennarar á Þúfu.



Fánaberar



Leikskólinn fékk fána með einkennismerki Garðasels á þessu ári. Venjan verður sú að hver deild fær fánan einn mánuð í senn og sjá um að draga hann að húni. Á Þúfu fóru börnin með til skiptis að draga fánan og var mikil gleði og stolt sem ríkti þega fánin var dregin upp.



Hópavinna

Hópavinna hefst á Þúfu um miðjan október, börnin eru enn að koma inn í aðlögun og gengur það vel.

Börnin sem voru fyrir á deildinni hafa verið dugleg að taka á móti nýjum börnum, þau hafa aðstoðað okkur

og fylgst með yngstu börnunum á útisvæði. Sum standa sig svo vel í umönnunarhlutverkinu að nýju börnunum þykir nóg

um.

Markviss Hreyfing á Þúfu er á mánudögum og miðvikudögum

Börnin á Þúfu fara í hreyfingu til Stínu á sal leikskólans á mánudögum og í stöðvaþjálfun inni á deild á miðvikudögum. þá eru börnin dugleg að notast við útisvæðið til að efla grófhreyfingar og jafnvægi á leikskólalóðinni.



Ágúst 2006

Velkomin til starfa á ný eftir sumarfrí

Kæru foreldrar og börn, nú fer vetrarstarfið að hefjast á ný.

Aðlögun nýrra barna stendur yfir og gengur vel.

þess má geta að breyting og tilfærsla á deildum gekk nokkuð vel fyrir sig,

og er dásamlegt að sjá hversu börnin taka þessum breytingum vel,

þó svo að eitt og eitt barn rambi óvart inn á gömlu Þúfu og stari svo hissa á

þetta fólk sem er inni á deildinni.

Starfsmenn á Þúfu haustið 2006

Hrönn Guðmundsdóttir deildarstjóri 07:30-15:30

Alma Tómasdóttir leiðbeinandi 07:45-16:00

Nína Ósk Kristinsdóttir leiðbeinandi 09:00-17:00

Ruth Kristjánsdóttir leiðbeinandi 09:00-17:00

Rósa Laufeyjardóttir leiðbeinandi 08:00-13:15







- Útiíþróttadagur - Útiíþróttadagur -



Útiíþróttadagurinn í leikskólanum Garðaseli verður 21. júní 2006

settar verða upp stöðvar á útisvæði frá 10:00 - 11:00





Sumarhátíð 2006





Þann 5. júlí verður sumarhátíð Garðasels haldin, ef veður leyfir. frá Kl: 11:00 - 13:00. Foreldrafélagið og Garðasel bjóða upp á stemningu dagsins. Nánar auglýst síðar.


--------------------------------------------------------------------------------

ATH! Útiíþróttadagurinn sem vera átti í dag 14. júní fellur niður vegna veðurs, það á að athuga með morgundaginn 15. júní.


--------------------------------------------------------------------------------







Sumarleyfi í Garðaseli

Leikskólinn verður lokaður frá og með 11. júlí til og með 14. ágúst 2006

Börn og starfsfólk mæta til starfa þann 15. ágúst.

kveðja frá kennurum á Þúfu


--------------------------------------------------------------------------------



Útivalið hefst 6. júní

Útivalið verður á 4 sinnum í viku, frá kl: 10:00 - 11:00

Fjórir krókar verða í boði fyrir börnin, þeir eru:

Ævintýrakrókur: hér verður allt milli himins og jarðar í boði, fer eftir veðri og vindum.

Vatnskrókur: Hér verður sullað og málað með vatni.

Listakrókur: Í þessum krók verður hægt að mála, kríta, leira, klippa, líma, teikna og margt fleira sem tengist list.

Smíðakrókur: Hér verða hallirnar mest í huga hvers barns, en með hverju hamarshöggi stækka hallir og hús barnanna.



Á þessum tíma geta börnin valið leik sem hentar þeim hverju sinni.


--------------------------------------------------------------------------------



London ferð lokið

Kæru foreldrar

Nú er námsferð okkar til London lokið og vorum við ánægðar með þessa ferð. Þó að ferðinni sé lokið má segja að gagnavinnsla sé rétt byrjuð. Við munum skila af okkur skýrslu um ferðina og leikskólana.


--------------------------------------------------------------------------------



Jenný Lára Magnadóttir fer í barneignaleyfi



Í dag 2. júní 2006 fer Jenný okkar í fæðingarorlof. Nína Ósk Kristinsdóttir mun taka við hennar stöðu á Þúfu fram á hausmánuð. Við bjóðum Nínu velkomna og óskum Jenný góðs gengis.

Kveðja kennarar á Þúfu


--------------------------------------------------------------------------------



Leikföng

Kæru foreldrar

Sú regla hefur verið að börnin á Þúfu hafa mátt koma með leikföng með sér inn á deildina. Það hefur gengið nokkuð vel en nú er farið að bera á því að þeim nægir ekki eitt lítið leikfang heldur er sífelt að bætast í safnið þeirra. Þetta er farið að valda óróa á deildinni og viljum við biðja ykkur um að hjálpa okkur með því að skilja leikföngin eftir heima eða í hólfum barnanna.

Með fyrirfram þökk

kennarar á Þúfu



cutecolor.com


--------------------------------------------------------------------------------





Sumarið er komið

Börn og kennarar á Þúfu óska öllum gleðilegs sumars, með þökk fyrir veturinn




--------------------------------------------------------------------------------



Fagnaðarfundur í sal / Litadagur

Föstudaginn 21.apríl verður fagnaðarfundur í salnum okkar. Börnin mega mæta í einhverju bláu eða með eitthvað blátt. Við syngjum saman söngva sem tilheyra mars/apríl áætlun.

Páskafrí

Vinnustundir verða í fríi frá og með 10. apríl til 24. apríl.


Hafa samband

420 3160 gardasel@reykjanesbaer.is

Matseðill vikunnar

13. - 17. febrúar 2012

Mánudagur
Soðin ýsa, kartöflur og gulrætur
Þriðjudagur
Rauðlinsusúpa
Miðvikudagur
Ofnbakaður fiskur, kartöflur og salat
Fimmtudagur
Grjónagrautur, heimabakað brauð og álegg
Föstudagur
  Grísasnitsel, kartöflur og salat

Nýjustu myndir

Jóla, jóla 2010

Skoða myndasafn

Jólaball foreldrafélagsins 2010

Skoða myndasafn