Dagskipulag
07:30 - 09:30 Róleg stund/ Val
08:00 - 09:00 Morgunmatur
09:30 - 10:00 Tiltekt/ samverustund
10:00 - 11:00 Vinnustundir
11:00 - 11:30 Útivera
11:20 - 12:00 Hádegisverður/útivera
12:00 - 12:30 Hádegisverður/hvíld
12:30 - 13:00 Hvíld - Róleg stund
13:30 - 14:30 Útivera
14:30 - 15:30 Síðdegishressing
14:30 - 16:00 Val
16:00 - 16:15 Ávaxtastund/samvera
16:15 - 18:15 Frjáls leikur úti eða inni
Hreyfing
Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur
Hvammur Lundur Varða Þúfa Börn eftir hádegi
08:30 - 12:00 08 - 11:30 08:30 - 12:00 08:30 - 11:30 13:00 - 13:30
Hreyfing/Jóga
Kerfið sem nýtt verður með börnunum er byggt á námi kennarans, reynslu, þekkingu og
hugsjón. Unnið verður með börnin í smáum hópum, þannig að einstaklingurinn fær að njóta
sín til fulls, bæði andlega og líkamlega. Grunnurinn er byggður á meðvitund um sjálfan sig, líkamann,
huga og sál. Út frá því er unnið með sjálfsvirðinguna, sjálfsmyndina og fleira sem kemur út frá
hreyfingunni með ásetningi sem snýr að gleði, þakklæti og meðvitund sem svo ýtir undir ást,
kærleika og umhyggju fyrir sjálfum sér og þar af leiðandi með öðrum.
Hreyfing inni á deild
Í vetur ætlum við að vera með skipulagða hreyfingu inni á deild. þar verða settar upp stöðvar sem hafa það markmið að styrkja og efla hugtaka og málskilning, efla kjark og þor, styrkja vöðva og efla snerpu og úthald. þessir dagar verða á miðvikudögum frá 10:00 - 11:00. Hópstjórar sjá um sinn barnahóp þannig að ekki verða fleiri en 5 - 6 börn.