Skilaboðaskjóðan

Þemalok eru föstudaginn 4.maí. Þá lýkur eiginlegri hópavinnu hjá okkur og við tekur meiri útivera með sumarleikjum ofl. Í salnum verður leikrit og söngur í boði Hvamms og í hádeginu fáum við svo hamborgara og ís í eftirrétt.

Apríl mánuður í leikskólanum okkar:

Síðasta vetrardag þann 18.apríl verður litadagur í leikskólanum okkar, (blár litur) við verðum með fagnaðarfund í salnum og munum fagna komu sumarsins með söng og dans.

þann 23.apríl er svo bókadagur og mega börnin þá endilega koma með bók með sér í leikskólann.

 

Páskafrí verður í hópavinnunni frá 2. apríl til 10. apríl

Fagnaðarfundur í salnum okkar verður 30.mars n.k. og þá ætlum við að syngja lögin sem eru í mars-apríl áætluninni. Lögin sem við erum að æfa núna eru m.a. Pálína na na, hvínandi hvínandi vindur, mín kisa dansar tangó, það er gott að vera sem gleðin býr og það er gott að eiga vin. Ef ykkur langar í texta af lögunum endilega verið í sambandi við Rannveigu deildarstjóra.

Leikskólinn verður lokaður mánudaginn 26.mars´12 vegna skipulagsdags kennara

Nýjar myndir komnar inn á myndabankann okkar á Þúfu endilega kíkja á þær og sjá hvað við erum að gera skemmtilegt í leikskólanum okkar :)

Mömmu og ömmukaffi verður 20. febrúar n.k. í tilefni af konudeginum. Nánar auglýst með tölvupósti síðar.

Dagur leikskólans er 6. febrúar n.k. þá ætlum við að hafa hattaball í leikskólanum okkar. Dansa og skemmta okkur saman í salnum og skólahópurinn verður með söng-skemmtiatriði. Endilega leyfa börnum ykkar að koma með hatt - húfu í tilefni dagsins.

Tannverndarvikan 2012 hefst sunnudaginn 29. janúar og stendur til og með  4. febrúar.                                                              

Þema vikunnar tengist að þessu sinni sykri í matvælum/sælgæti og sykurneyslu.

Í tannverndarvikunni ætlum við á Þúfu m.a. að spjalla um tennurnar okkar, telja þær og skoða í spegli.

Einnig ætlum við líka að velta því fyrir okkur hvernig við getum hugsað vel um tennurnar okkar og hvað það er sem skemmir tennurnar.

Á bóndadaginn þann 20.janúar n.k. ætlum við að bjóða feðrum og öfum í morgunhressingu frá klukkan 8.30-9.30. Við munum bjóða upp á þorrasmakk og fleira gómsætt í tilefni þessa merka dags :)

 Gleðilegt nýtt ár og við þökkum fyrir liðið ár. Vonum að allir hafi átt gleðilega hátíð.

Hópavinnan hefst að nýju 9. jan.

10.janúar er lokað frá 08.00-10.00 um morguninn vegna starfsmannafundar kennara.

Endilega skoðið dagatalið sem er undir afmælisbörn... þar sjáið þið hvað er fleira á dagskrá í janúar mánuði.

 

Desember mánuður í leikskólanum

endilega kíkið á dagatalið undir afmælisbörn og skoðið dagskrána á aðventunni :)

 

Á fimmtudaginn ætlum við að baka piparkökur og væri gaman ef börnin kæmu með svuntur með sér :)

 

Leikskólinn okkar er lokaður föstudaginn 25.nóvember vegna skipulagsdags kennara.

 

Foreldrasamtölin hefjast á Þúfu 28.nóv. og standa yfir í tvo daga. Við biðjum foreldra um að virða tímatakmörk og er áætlað að hvert samtal taki um 15 mínútur.

 

Nýjar myndir inná fyrir október mánuð endilega kíkið á hvað við erum að gera skemmtilegt í leikskólanum okkar :)

 

 

Föstudaginn 16.sept. n.k. er dagur íslenskrar náttúru. Þessi dagur verður árlegur viðburður og er tileinkaður Ómari Ragnarssyni. Ætlum við á Þufu að týna laufblöð og annað sem tilfellur í nátturunni okkar og gera listaverk.

 

Leikskólinn verður lokaður vegna starfsmannafundar fimmtudaginn 15.sept. frá klukkan 08.00 - 10.00

                                                                                                                                                kv kennarar á Þúfu

 

Hópastarfið er komið á fullt skrið aftur eftir sumarfrí. Við förum 4x í viku í hópavinnu sem skiptist í göngu, þemavinnu, leikfimi og könnunarleik.

 

Velkomin til starfa aftur eftir sumarfrí :) Við erum að koma okkur hægt og rólega fyrir á nýju deildinni okkar Þúfu og gengur það bara ágætlega. Leikskólinn okkar á afmæli á morgun 03.08´11 og munum við bjóða upp á ís og vöfflur í tilefni dagsins.

 

Vorum að setja inn nýjar myndir í júní albúmið á Lundi. Bætum svo fleirum myndum við þegar líður á sumarið :) Endilega kíkja á okkur og sjá hvað það er gaman á yngstu deildinni :)

Sumarfrí hefst þriðjudaginn 28.júní og því lýkur þriðjudaginn 2. ágúst :) Óskum við ykkur gleðilegs sumars og hafið það gott í fríinu

Sumarhátíðin verður haldin 22.júní og hefst hún klukkan 14.00. Íþróttaálfurinn og Solla kíkja í heimsókn um kl 14.15 og svo ætlum við að grilla og leika okkur saman.

Foreldrafélagið býður upp á skemmtiatriðið og verða af því tilefni með sölusýningu á verkum barnanna á sumarhátíðinni. Hvert listaverk mun kosta 500 kr.

Börnin á Lundi fædd 2008 munu eftir sumarfrí fara á deild 3- 4 ára barna sem heitir Þúfa. Er það deildin sem er næst Lundi einnig munum við fá ný fatahólf sem tilheyra nýju deildinni. Tveggja ára börnin fædd 2009 og eru byrjuð á Lundi verða þar áfram með jafnöldrum sem fljótlega hefja aðlögun í leikskólanum okkar :)

 

31. maí er dagur barnsins. Við héldum upp á hann í salnum okkar sl. föstudag. Börnin gerðu kórónur og sungu saman. 

Vagna vatnsskorts á morgun 26.maí verður leikskólinn ekki opnaður fyrr en klukkan 10:00 um morguninn. Ekki er leyfilegt að hafa opið samkvæmt heilbrigðiseftirliti þegar ekkert rennandi kalt vatn er.

                                                                                                                                              kveðja kennarar

Nýjar myndir komnar inn í myndabankann okkar :) búið að bæta í apríl albúmið og svo eru komnar inn myndir í maí albúm.  Myndir af okkur í leik og svo frá græna deginum. Endilega kíkja á okkur og sjá hvað það er gaman að vera á Lundi :)

Útiíþróttadeginum var frestað um tvær vikur vegna veðurs. Verður hann því haldinn 2.júní n.k.

19. maí n.k. verður útiíþróttadagur hjá okkur hér í leikskólanum. Þann dag förum við í þrautir og leiki á útisvæðinu :)

20.maí n.k. verður leikskólinn lokaður vegna skipulagsdags kennara :)

26. maí n.k. verður svo hjóla-dótadagur hjá okkur og mega börnin koma með hjólin sín eða önnur  úti-leikföng að heiman :)

 

Ný lög eru á dagskrá hjá okkur í samveru núna og syngjum við sumarlög og fleiri sem tilheyra þessum árstíma. Ef ykkur langar í textann við lögin má nálgast þá hjá deildarstjóra..

                                                                                                                                                               kv Kennarar

Þemalok verða 6.maí og fer þá hópavinnan í sumarfrí. Við tekur  meiri útivera með sumarleikjum eins og krítum, sulli, smíðakrók og fleiru sem tilheyrir sumrinu og hækkandi sól.

Leikskólinn verður lokaður vegna skipulagsdags kennara föstudaginn 20.maí n.k.

Foreldrafélagið gaf hverju barni á leikskólanum lítið páskaegg sem við földum og borðuðum svo í salnum okkar. Þökkum við foreldrafélaginu kærlega vel fyrir :) 

Börnin mega koma með bækur í leikskólann þriðjudaginn 26.apríl í tilefni dags bókarinnar :)

Nýjar myndir fyrir apríl mánuð komnar inn á heimasíðuna og óskum við ykkur öllum gleðilegs sumars og páska :)

                                                                                                                                                               sumarkveðja kennarar á Lundi

 

20.apríl n.k. verður litadagur í leikskólanum okkar. Ætlum að fagna síðasta vetrardegi þessa árs :) Allir að mæti með eitthvað grænt eða í einhverju grænu.

kv Kennarar

 

Leikskólinn verður lokaður til klukkan 10.00 þann 5. apríl n.k. vegna starfsmannafundar

 

Foreldrasamtölin eru 21. - 22. mars 2011

ef þörf er á túlk í viðtali munu foreldrar fá tíma síðar :)

 

 

Þann 18. mars n.k. verður leikskólinn lokaður vegna skipulagsdags kennara

Dzien Organizacji
I Planowania
Z Powodu dnia organizacyjnego navczycieli dnia 18 march 2011 (piatek) przedszkole bedzie zamkniete

Hafa samband

420 3160 gardasel@reykjanesbaer.is

Matseðill vikunnar

14. - 18. maí 2012

Mánudagur
Soðinn fiskur, kartöflur og grænmeti
Þriðjudagur
Bixímatur, kartöflur og agúrka
Miðvikudagur
Plokkfiskur, kartöflur og salat
Fimmtudagur
Uppstigningardagur - frí
Föstudagur
   Kjúklingapottréttur, grjón og salat

Nýjustu myndir

Jóla, jóla 2010

Skoða myndasafn

Jólaball foreldrafélagsins 2010

Skoða myndasafn